
Ef stærðin þín er ekki til hafðu þá samband á pedal@pedal.is og við skoðum málið fyrir þig.
Hinn fullkomni æfingajakki
OFF GRID MicroTech jakkinn er úr fislétta eVent® efninu sem er eitt það besta þegar kemur að vatnsheldni og öndunareiginleikum, léttasta Pedla jakkinn, aðeins 150 gr og því þægilegt að geyma í bakvasa. Rennilásinn er tvöfaldur svo hægt er að renna frá bæði að neðan og ofan.
Jakkinn er vatnsheldur að framan og með netaefni á bakinu svo þú ofhitnar ekki. Netaefnið að aftan gerir jakkann teygjanlegri, faðmar hjólarann, flagsast ekki né skrjáfar í því á meðan það gefur aukin þægindi og hreyfanleika. Efnið að framan er létt og lipurt sem heldur köldum vindum vel frá án þess að þrengja of mikið að.
Vertu viðbúin hvenær sem er fyrir skyndilega rigningu og úða frá veginum. Fullkomin vernd úr léttu himnuefni sem andar fullkomlega ásamt því að veita góða vörn fyrir köldu íslensku vindunum.
Helstu eiginleikar:
- Bandaríska eVent® himnuefnið, 20.000mm vatnsheldni.
- Endurskin
- YKK tvöfaldur rennilás
- Netaefni í baki fyrir aukna öndun
Stærðartafla í cm
XS | S | M | L | XL | |
Brjóst | 85 | 90 |
95 |
100 |
105 |
Sídd framan | 47 | 49 |
51 |
53 |
55 |