
Ef stærðin þín er ekki til hafðu þá samband á pedal@pedal.is og við skoðum málið fyrir þig.
Vesti eru í algjöru uppáhaldi hjá okkur.
Með gott vesti í fataskápnum getur maður breytt jakka, treyju eða peysu í eitthvað annað og meira. Þannig verður notagildi flíkana í skápnum mun meira því vestið hjálpar þér að skala fatnaðinn þinn og velja rétt fyrir veðrið hverju sinni.
Þetta ljósbleika WindTECH vesti kemur í fallegu kvensniði sem fellur að líkamanum. Liturinn passar við mikið af eldri flíkum sem og nýum. Framhliðin er úr vatns- og vindheldu efni en bakhliðin úr fljótþornandi léttara efni svo það andar vel. Vestið er með límdum saumum að innanverðu og sílikon bandi að neðan til að halda því á réttum stað. Vestið er með bakvösum sem er ótrúlega góður eiginleiki á vesti.
Þetta er ekki örþunnt “pakkaðu-saman” vesti heldur gefur það meiri vörn í fjölbreyttum aðstæðum en pakkast þó vel í bakvasa á treyju eða jakka þegar það þarf.
Helstu eiginleikar:
- Ítalskt WindTEX himnuefni með 10.000 mm vatnsheldni í framhlið
- Ítalskt MITI örtrefjanetaefni á bakhlið
- Hitalímdir saumar
- Sílikon band að aftan til að halda vestinu á réttum stað
- Teygjanlegur handvegur
- Styrktir bakvasar
- Endurskin
Stærðartafla í cm
XS | S | M | L | XL | |
Brjóst | 85 | 90 |
95 |
100 |
105 |
Sídd framan | 47 | 49 |
51 |
53 |
55 |