
Ef stærðin þín er ekki til, sendu okkur þá línu á pedal@pedal.is og við skoðum málið fyrir þig.
Mjúkar, hlýjar og á frábæru verði.
Síðar púðabuxur úr PRO línu Monton. Mikið lagt upp úr hönnun og sniði sem hentar kröfuhörðu hjólreiðafólki. Efnið er ítalskt Lombardia DWR efni sem heldur bæði vindi og vætu úti upp að vissu marki og halda hita á fótunum með míkróflísefni að innan. Buxurnar eru með PRO red carbon púða fyrir aukin þægindi í lengri hjólatúrum. Mjög klæðilegar og góðar buxur sem komu okkur svo sannarlega á óvart þegar við gerðum okkar prufanir á þeim síðastliðið ár og þá sérstaklega þegar verðið er skoðað.
Monton er asískt merki og eru stærðirnar því frekar litlar miðað við evrópskar stærðir. Notið stærðartöfluna til að finna ykkar réttu stærð en miða má við að EU stærð sé einni stærri en sú asíska (Asian M= EU S). Ef þú ert í vafa er ekkert mál að aðstoða þig með stærðarval.