
Thermal peysa - fullkomin í íslenska sumarið
Fáguð hönnun - Peysa úr mjúku, þægilegu og teygjanlegu efni, sem heldur vindi frá og er með flísefni að innan. Sílikon band neðst á faldi sem heldur peysunni á réttum stað og þrír bakvasar. Sniðið hentar konum jafnt sem körlum og mælum við þá með að konur taki minni stærð. (Munurinn á kvenna og karla stærðum er ca svona: KVK stærð L = KK stærð S).
Flott peysa sem gott er að nota innan undir vesti, þunna jakka eða eina og sér með undirskyrtu (e.baselayer).
Monton er asískt merki og eru stærðirnar því frekar litlar miðað við evrópskar stærðir. Notið stærðartöfluna til að finna ykkar réttu stærð en miða má við að EU stærð sé einni stærri en sú asíska (Asian M= EU S). Ef þú ert í vafa er ekkert mál að aðstoða þig með stærðarval.