Solo WHT FLENS-BLT
Solo WHT FLENS-BLT
Solo WHT FLENS-BLT
Solo WHT FLENS-BLT
  • Load image into Gallery viewer, Solo WHT FLENS-BLT
  • Load image into Gallery viewer, Solo WHT FLENS-BLT
  • Load image into Gallery viewer, Solo WHT FLENS-BLT
  • Load image into Gallery viewer, Solo WHT FLENS-BLT

Solo WHT FLENS-BLT

Merki
Alba
Verð
35.900 kr
Útsöluverð
35.900 kr
Verð
Uppselt
Verð vöru
per 
Virðisaukaskattur er innifalinn. Sjá upplýsingar um Sendingarkostnað

Sjálfdekkjandi ævintýragleraugu

SOLO eru gleraugun fyrir þá sem elska ævintýri og vilja hafa lookið í lagi. Gleraugun henta sérstaklega vel á fjallahjól, götuhjól, fjallaskíði, sjósport o.sfrv.

F-lens: Er sjálfdekkjandi linsa (photochromic) og tryggir að þú sjáir alltaf hlutina í réttu ljósi. Linsurnar bregðast hratt við birtu breytingum og lýsa eða dekkja sig sjálfar eftir því hvað hentar.
Cat 0-3

Gleraugun veita hámarks vörn fyrir skaðlegum geislum sólar og þau eru sérstaklega vel varin fyrir aðstæðum þar sem speglun sólar getur truflað líkt og í snjó og á sjó. Þau eru með hliðum sem hægt er að fjarlægja þegar skyggja tekur og apres partýið tekur við.

Gleraugun eru fjölstillanleg, hægt er að lengja spangirnar til að þau passi sem flestum og taka hliðarnar af. Sérstök rauf er á nefstykkinu sem loftar vel um og líka fyrir ofan glerin, þannig lágmarkast hættan á því að þau móði að innan.

Ramminn TR90 er blanda af koltrefjum (carbon fiber) og nylon, sem gerir þessi gleraugu 20% léttari en önnur sambærileg gleraugu. Þá er ramminn einnig mjög sveigjanlegur en réttir sig sjálfur ávallt til baka í upphaflega stöðu.

Þyngd gleraugna 38 gr.

Gleraugun koma í harðri öskju og fylgir klútur til að þrífa linsurnar sem og nylon ferðapoki sem ver gleraugun þegar þau eru ekki í notkun og hægt að smella honum beint utan á bakpokann.

VZUM linsurnar frá Alba Optics eru framleiddar með háleit markmið í huga.
Að veita einfaldlega bestu mögulegu frammistöðuna í sólgleraugum í hvaða veðri sem er, við hvaða aðstæður sem er. 

VZUM linsurnar eru einstaklega vandaðar, þær eru með sterk birtuskil og skila sterkum litbrigðum sem aftur verður til þess að sýnin verður mjög skörp og greinileg. Þetta skilar sér allt í minna þreyttum augum og ánægjulegri útivist.

VZUM linsurnar nota base 6 non-centered tækni sem gerir það að verkum að fullur fókus án bjögunar næst hvert sem horft er í glerinu og kemur þannig í veg fyrir þreytu og hausverk. Þetta er gert með því að hafa linsuna misþykka, hún er þykkust í miðjunni og þynnist svo út til kantanna.

Linsurnar eru smíðaðar úr mjög léttu Polycarbonate plasti sem er gríðarlega sterkt og endingargott plastefni. Í öllum VZUM linsum er fjöldi laga sem gerir þessi gleraugu svo einstök, hver linsa er með lag sem ver augun fyrir UV bylgjum, það er lag sem minnkar allan glampa og loks eru þau olíufilmuð sem gerir öll þrif mun auðveldari og vatn rennur betur af þeim.