Skilmálar

Upplýsingar um seljanda

Seljandi er Pedal ehf., kennitala: 550121-0420, Huldugili 48, 603 Akureyri. Fyrirtækið sérhæfir sig í innflutningi og sölu á hjólreiðafatnaði.

Stofnendur og eigendur Pedal ehf. eru Freydís Heba Konráðsdóttir og Hafdís Sigurðardóttir. Hægt er að senda okkur tölvupóst á netfangið pedal@pedal.is, heyra í okkur í síma; Freydís, s. 820-8455, Hafdís, s. 849-4623, eða vera í sambandi við okkur á samfélagsmiðlum okkar, Facebook og Instagram.


Pedal ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru

Þú velur vöru, setur í körfu, velur greiðslufyrirkomulag og pöntunin er afgreidd um leið og greiðsla hefur borist. Allar pantanir eru teknar saman og afgreiddar sama dag ef pantað er fyrir kl. 16:00 og eru komnar á pósthús næsta virka dag eftir pöntun. Ef pantað er eftir kl. 16:00 er ekki hægt að tryggja að varan fari í póst næsta virka dag.

Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og
tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.

Öllum pöntunum dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar.

Pedal ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá okkur til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Það er alltaf hægt að nálgast vörurnar okkar samdægurs á Akureyri en þá þarf að senda tölvupóst á pedal@pedal.is eða ná á okkur á samfélagsmiðlunum okkar. 

Verð á vöru og sendingarkostnaður 

Öll verð í vefverslun eru í íslenskum krónum með inniföldum 24% virðisaukaskatti og geta breyst án fyrirvara vegna rangra verðupplýsinga eða prentvillna. Sendingakostnaður er frír ef verslað er fyrir meira en 15.000 kr en að öðrum kosti bætist hann við verð vöru áður en greiðsla fer fram og er samkvæmt verðskrá Íslandspósts hverju sinni. Hægt er að velja um að fá vörur sendar heima að dyrum eða sækja á næsta pósthús eða póstbox. Öllum sendingum fylgir endursendingarmiði svo hægt er að skila vörum þér að kostnaðarlausu.

Að skipta og skila vöru

Veittur er 30 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi.

Frí endursending með Íslandspósti fylgir öllum pöntunum. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast sendið tölvupóst á netfangið pedal@pedal.is áður en vara er send til baka.


Sé varan gölluð er viðskiptavini boðin ný vara í staðinn og við greiðum allan sendingarkostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Sé kaupandi á einhvern hátt óánægður með kaupin hvetjum við kaupanda til að hafa samband við okkur og við leysum málin. 


Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Upplýsingar viðskiptavina

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Farið er með allar persónuupplýsingar sem seljandi móttekur sem algjört trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu.
Kaupanda gefst hins vegar kostur á að fá send tilboð í tölvupósti og mun seljandi þá aðeins nota þær upplýsingar sem til þess þarf s.s. tölvupóstur.

Eignarréttur

Seldar vörur eru eign seljanda  þar til kaupverð er að fullu greitt.
Reikningsviðskipti eða önnur lánaform afnema ekki eignarétt seljanda fyrr en full greiðsla hefur borist.

 

Lög og varnarþing 

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Norðurlands Eystra.