Okkar uppáhald orðið enn betra!
Ef stærðin þín er ekki til á lager, hafðu þá samband við pedal@pedal.is og við skoðum það fyrir þig!
Nú er búið að uppfæra SuperFIT buxurnar með nýjum axlarböndum sem gefa enn meiri léttleika og fallegt útlit, ásamt meira endurskini í smáatriðunum. Sniðið, efnið og púðinn á buxunum sjálfum er enn það sama.
Athugið að stærðin á þessum SuperFIT 2.0 er eins og á forveranum, mjög þröngt snið þar sem efnið gefur lítið eftir og þarf því oft að taka einni stærð stærri en í öðrum buxum. Heyrðu í okkur ef þig vantar aðstoð við að finna þína réttu stærð.
Þessar púðabuxur eru þær bestu sem við höfum prófað!
Buxurnar eru hannaðar frá grunni með þægindi að leiðarljósi. Sniðið á buxunum er þannig að ekki eru saumar við stroffið sem gefur buxunum fallegt og mjúkt útlit. Þar sem þær eru saumlausar þrýstast þær síður inn í lærin. Littlar sílikon doppur innan á stroffinu halda þeim mjög vel á sínum stað.
Buxurnar eru úr hágæða ítölsku efni sem er hannað til að halda vel við vöðvana, gefa stöðuleika og lágmarka loftmótstöðu hjólarans.
Punkturinn yfir i-ið er margverðlaunaði Carbonium Road Perforamance CYTECH púðinn í buxunum sem gefur aukin afköst og einstök þægindi. Púðinn er góður fyrir allt að 7 klukkustunda hjólaferðir.
Helstu eiginleikar vörunnar:
- SuperFIT snið - Þröngt compression snið sem heldur vel við vöðvana
- Efni í buxum: Italian Miti / Matte finish
- Axlabönd úr nylon mesh efni.
- Enduskin í smáatriðunum.
- SuperGRIP saumlaust stroff með áprentuðum sílikon doppum
- Carbonium Road Perforamance CYTECH púði, sérstakt snið fyrir konur
- Mjög góð öndun og færslueiginleikar efnisins á svita frá húðinni.
Stærðartafla í cm
XS | S | M | L | XL | 2XL | |
Mitti | 63 | 68 | 73 | 78 | 83 | 88 |
Innansaumur | 20 | 22 | 24 | 26 | 28 | 30 |
Læri | 40 | 45 | 50 | 55 | 60 | 65 |
Brjóst | 85 | 90 | 95 | 100 | 105 | 110 |