ANVMA Lei BLK FLENS-BTL
ANVMA Lei BLK FLENS-BTL
ANVMA Lei BLK FLENS-BTL
ANVMA Lei BLK FLENS-BTL
  • Load image into Gallery viewer, ANVMA Lei BLK FLENS-BTL
  • Load image into Gallery viewer, ANVMA Lei BLK FLENS-BTL
  • Load image into Gallery viewer, ANVMA Lei BLK FLENS-BTL
  • Load image into Gallery viewer, ANVMA Lei BLK FLENS-BTL

ANVMA Lei BLK FLENS-BTL

Merki
Alba
Verð
24.900 kr
Útsöluverð
24.900 kr
Verð
Uppselt
Verð vöru
per 
Virðisaukaskattur er innifalinn. Sjá upplýsingar um Sendingarkostnað

Sjálfdekkjandi ævintýragleraugu

ANVMA Lei línan frá Alba Optics er fyrir þá sem sjá hlutina með opnum huga og eru tilbúnir að kanna nýjar víddir, ferðast og kynnast nýjum stöðum. Gleraugun endurspegla þessi lífsviðhorf og eru hinn fullkomni ferðafélagi sem hentar í allt.

Gleraugun eru ótrúlega létt, aðeins 19 grömm og stömum nefpúða sem lætur þau liggja þægilega að andlitinu og nýju spangirnar tryggja að þú finnir varla fyrir þeim. Linsan hefur verið endurhönnuð með stærra sjónsviði og frábærri loftun.

F-lens: Er sjálfdekkjandi linsa (photochromic) og tryggir að þú sjáir alltaf hlutina í réttu ljósi. Linsurnar bregðast hratt við birtu breytingum og lýsa eða dekkja sig sjálfar eftir því hvað hentar.
Cat 0-3
.

Ramminn TR90 er blanda af koltrefjum (carbon fiber) og nylon, sem gerir þessi gleraugu 20% léttari en önnur sambærileg gleraugu. Þá er ramminn einnig mjög sveigjanlegur en réttir sig sjálfur ávallt til baka í upphaflega stöðu.

Þyngd gleraugna 19 gr.

Gleraugun koma í harðri öskju, og með tösku sem ver gleraugun þegar þau eru ekki í notkun, einnig fylgir klútur til að þrífa linsurnar og snúra/hálsband sem festist í gleraugun.

VZUM linsurnar frá Alba Optics eru framleiddar með háleit markmið í huga.
Að veita einfaldlega bestu mögulegu frammistöðuna í sólgleraugum í hvaða veðri sem er, við hvaða aðstæður sem er. 

VZUM linsurnar eru einstaklega vandaðar, þær eru með sterk birtuskil og skila sterkum litbrigðum sem aftur verður til þess að sýnin verður mjög skörp og greinileg. Þetta skilar sér allt í minna þreyttum augum og ánægjulegri útivist.

VZUM linsurnar nota base 6 non-centered tækni sem gerir það að verkum að fullur fókus án bjögunar næst hvert sem horft er í glerinu og kemur þannig í veg fyrir þreytu og hausverk. Þetta er gert með því að hafa linsuna misþykka, hún er þykkust í miðjunni og þynnist svo út til kantanna.

Linsurnar eru smíðaðar úr mjög léttu Polycarbonate plasti sem er gríðarlega sterkt og endingargott plastefni. Í öllum VZUM linsum er fjöldi laga sem gerir þessi gleraugu svo einstök, hver linsa er með lag sem ver augun fyrir UV bylgjum, það er lag sem minnkar allan glampa og loks eru þau olíufilmuð sem gerir öll þrif mun auðveldari og vatn rennur betur af þeim.