Ef stærðin þín er ekki til, sendu okkur þá línu og við skoðum málið fyrir þig.
SuperFLEECE
SuperFLEECE jakkinn er ný vara, þróuð út frá Roubaix jakkanum sem hefur verið uppáhald margra (þar á meðal okkar). SuperFLEECE jakkinn er úr sama mjúka teyjganlega efninu en hefur verið bættur með vindheldu efni að framan til að gefa enn betri vörn en áður. Svo mjúkur að auðvelt er að nota jakkann einan og sér, lipur svo hann faðmar líkamann og mjög góð öndun.
Aukið endurskin á baki er á þessum nýja SuperFLEECE jakka ásamt renndum vasa á baki.
Sniðið er miðlungs þröngt, það gefur pláss fyrir meiri hreyfingu en er þó aðsniðið. Vegna mikillar teygju í efninu mælum við með að þú takir minni valkostinn ef þú ert á milli stærða.
Helstu eiginleikar:
- Ítalska M.I.T.I® Roubaix microfís efni, 235GSM.
- Vindhelt efni að framan
- Teygjanleg handarstroff
- YKK tvöfaldur rennilás sem rennist bæði upp og niður
- Meira endurskin
- Styrktir bakvasar
- Sílíkon faldur neðan á jakkanum sem heldur honum á sínum stað
Stærðartafla í cm
XS | S | M | L | XL | |
Brjóst | 85 | 90 | 95 | 100 | 105 |
Sídd framan | 47 | 49 | 51 | 53 | 55 |
Lengd ermi | 52 | 54 | 56 | 58 | 60 |