Monton flís húfan er úr mjúku sléttu efni með flís að innan. Efnið er mátulega þykkt undir hjálminn en nógu þétt til að halda vindinum frá eyrunum og höfðinu og halda góðum hita.
Húfan er breiðari yfir eyrum sem eykur enn á virkni þess að halda inni hitanum sem og hún rennur ekki upp undir hjálminn.
Kemur í einni stærð sem hentar öllum.
"Þetta er nýja uppáhaldið mitt !! Engin kuldi í norðan áttinni og ekkert flaksandi buff !! love it" - Hafsteinn Lúðvíksson