Nú er búið að uppfæra SuperFIT buxurnar með nýjum axlarböndum sem gefa enn meiri léttleika og fallegt útlit, ásamt meira endurskini í smáatriðunum. Sniðið, efnið og púðinn á buxunum sjálfum er enn það sama.
Athugið að stærðin á þessum SuperFIT 2.0 er eins og á forveranum, mjög þröngt snið þar sem efnið gefur lítið eftir og þarf því oft að taka einni stærð stærri en í öðrum buxum. Heyrðu í okkur ef þig vantar aðstoð við að finna þína réttu stærð.
Ef stærðin þín er ekki til á lager, hafðu þá samband við pedal@pedal.is og við skoðum það fyrir þig!
Púðabuxurnar eru hannaðar frá grunni með þægindi að leiðarljósi.
Sniðið á buxunum er þannig að ekki eru saumar við stroffið sem gefur buxunum fallegt og nútímalegt útlit. Örlitlar sílikon doppur innan á stroffinu halda þeim föstum á sínum stað og þegar þú ert komin í buxurnar haldast þær fullkomlega á sínum stað.
Buxurnar eru úr hágæða ítölsku efni sem er hannað til að halda vel við vöðvana, gefa stöðuleika og lágmarka loftmótstöðu hjólarans.
Punkturinn yfir i-ið er margverðlaunaði Carbonium Road Perforamance CYTECH púðinn í buxunum sem gefur aukin afköst og einstök þægindi. Púðinn er góður fyrir allt að 7 klukkustunda hjólaferðir.
Hestu eiginleikar / Atriði:
- SuperFIT snið - Þröngt compression snið sem heldur vel við vöðvana
- Efni í buxum: Italian Miti / Matte finish
- Axlabönd úr nylon mesh efni.
- Endurskin í smáatriðunum.
- SuperGRIP saumlaust stroff með áprentuðum sílikon doppum
- Carbonium Road Perforamance CYTECH púði
- Mjög góð öndun og færslueiginleikar efnisins á svita frá húðinni
Stærðartafla í cm
XS | S | M | L | XL | XXL | |
Mitti | 68 | 74 | 80 | 86 | 92 | 98 |
Innansaumur | 24 | 26 | 28 | 30 | 32 | 34 |
Læri | 43 | 48 | 53 | 58 | 63 | 68 |