Adventure tee langerma treyja úr léttu fljótþornandi "technical" efni og með afslöppuðu sniði sem hentar á fjallahjólið eða gravelhjólið.
Treyjan kemur í KVENNA og KARLA sniði frá stærð XS upp í 3XL. Treyjan kemur ekki í barnastærðum en hægt er að notast við minni stærðirnar í kvenna og karla sniði.
Varan er niðurgreidd með styrkjum frá Jarðböðunum í Mývatnssveit, Bílaleigu Akureyrar - Höldur og Pedal.is. Ath- myndin sýnir treyjuna með auglýsingum frá árinu 2024. Hún verður uppfærð með réttum auglýsingum, en treyjan er eins að öllu öðru leyti.
Ath: Til að hægt verði að panta þarf að ná ákveðnum lágmarksfjölda seldra treyja. Takist það ekki, verður endurgreitt
Mátun á stærðum verður auglýst síðar.
Treyjur sem eru keyptar fyrir börn fædd árinu 2008 og eftir, eru seldar á 6.000 kr. Treyjur sem eru keyptar fyrir þau sem eru eldri kosta 10.500 kr. HFA niðurgreiðir aukalega treyjurnar fyrir börn og treystum við því að fólk misnoti ekki þessa niðurgreiðslu.